Skræður með eldpipar - 1000 ára sveitaþorp

1.790 kr

Vörunúmer: 8510205001 1000 ára sveitaþorp

Vara væntanleg

á þeim tíma

sem þér hentar

Skræður með eldpipar - Austurlensk áhrif, ertandi sterkt og eðal - 80g.

Skræður eru marinerað, hálf-þurrkað og snögg steikt hrossakjöt. Skræður er aldagömul íslensk matarhefð framreidd á nýjan og spennandi máta með uppskriftum og aðferðum dregnar víðsvegar að úr heiminum. 

Matargerð og matarmenning víðsvegar úr heiminum hefur aldrei verið nær Íslendingum eins og í dag. 1000 Ára Sveitaþorp vill endurspegla forvitni landans og seðja hungur þeirra með spennandi réttum þar sem íslenskar matarhefðir eru framreiddar á nýjan máta. Skræður eru ein af þessum hefðum. Í yfir 100 ár hafa Skræður fyllt vasa kámleitra, klofstuttra, ferstrendra og fjólubláa Þykkbæinga sem snarl við skálaræðum og hvers kyns tækifæri. Gríptu í faxið á tækifærinu og prufaðu Skræður.

Skræður eru gerðar frá grunni og í litlu magni til að hámarka gæði. Gott með ölveigum, milli mála eða sem nesti í malpokann. 

Kælivara 0 - 4°C

Innihaldslýsing

Innihald: Hrossakjör, hvítlaukur, repjuolía, sojasósa (sojabaunir, hveiti, vatn, salt), teriyaki sósa (sojabaunirhveiti, vatn, salt, vín, maíssíróp, edik, krydd, laukduft sýra (E363), hvítlauksduft, rotvarnarefni (E211)), svartur pipar, bragðaukandi efni (E621).

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g

  • Orka 1133 kJ / 269 kkal
  • Fita 8,9g
  • - þar af mettaðar fitusýrur 1,7g
  • Kolvetni 6,3g
  • - þar af sykurtegundir 1g
  • Prótein 141g
  • Salt 1,4g
1000 ára sveitaþorp

1000 ára sveitaþorp, Hakoti, Þykkvabæ.

www.1000arasveitathorp.is