ÍSAM
Ísam var stofnað 15. apríl 1964. Félagið er með starfsemi á fimm stöðum en innan tíðar mun öll starfsemi félagsins færast á Korputorg. Í dag eru höfuðstöðvar þess á Blikastaðavegi 2-8 í Reykjavík. Eigandi fyrirtækisins er Kristinn ehf. í Vestmannaeyjum.
Frá upphafi hefur verið lögð höfuðáhersla á að flytja inn og markaðssetja þekkt vörumerki í náinni samvinnu við framleiðendur þeirra og viðskiptavini. Segja má að ákveðin vatnaskil hafi orðið þegar Procter & Gamble ákvað að velja Ísam sem einkaumbjóðanda sinn á Íslandi snemma á níunda áratugnum, en áður höfðu nokkrir aðilar flutt inn vörur frá fyrirtækinu. Samstarfið við P&G hefur verið einkar lærdómsríkt á sviði markaðssetningar hágæðavöru og skilað einstökum árangri í sölu og markaðshlutdeild á framleiðsluvörum þeirra.
Það var svo árið 2000 sem Ísam fór að beina sjónum sínum að innlendum framleiðslufyrirtækjum með kaupum á öllu hlutafé Frón. Í kjölfarið, tveimur árum síðar, voru fest kaup á Ora og 2003 var Kexsmiðjunni á Akureyri bætt í glæsilega flóru innlendra framleiðenda. Í byrjun árs 2004 var svo gengið frá stærstu kaupunum þegar fest voru kaup á öllu hlutafé í Myllunni-Brauð hf.
Fyrirtækið starfrækir eigið vöruhús og annast vöruafgreiðslu með eigin bifreiðum.
Hjá ÍSAM starfa næstum 400 starfsmenn frá 21 þjóðerni.