ÁSTRÍK
Hjá Ástrík poppkorn er aðeins notað besta mögulega hráefni. Poppbaunirnar eru fluttar inn frá Suður-Frakklandi en þær eru óerfðabreyttar og framleiddar eftir ströngum gæðakröfum. Ástrík poppkorn segist gæta þess að baunirnar séu geymdar í réttu birtu- og hitastigi svo þær haldi gæðunum. Karamellan sem umlykur poppið er elduð frá grunni af mikilli nákvæmni en til þess að karamellan hafi góða áferð, skiptir hvert handtak og tímasetning gríðarlega miklu máli. Ástrík poppkorn notar íslenskt sjávarsalt, jurtir og smjör í karamelluna og engin aukaefni.
Allar frekari upplýsingar má finna á heimasíðu þeirra: www.astrik.is