FISKVERKUN FINNBOGA
Harðfiskverkunin var stofnuð 1985 af Finnboga Jónassyni. Fiskverkun Finnboga herðir Ýsu, Steinbít, Þorsk og Lúðu. Harðfiskurinn er þurrkaður eftir aldagamalli hefð í hjöllum í Vestfirsku sjávarlofti.
Fyrstu árin var allt hert í hjalli á Eyrarhlíð sem enn er í notkun, en seinna var keyptur stór hjallur í Arnardal þar sem megnið af fiskinum er þurrkað í dag.
Öll framleiðslan er hjallþurrkuð, ekkert er inniþurrkað og er hengt á hjall frá mánaðamótum sept- okt og fram að mánaðamótum apríl – maí, fer það nokkuð eftir veðri. Einungis er hengt upp í köldu veðri, svo bestu gæðum sé náð.
Fiskurinn er fullur af prótíni en snauður af fitu og kolvetnum. Náttúrulega hrein afurð stútfull af hollustu.