LÝSI
Lýsi byggir á áratuga reynslu og hefur ætíð verið í fremstu röð framleiðslufyrirtækja í heiminum. Tilkoma nýrra verksmiðja árin 2005 og 2012 hefur svo tryggt fyrirtækinu forystu á sínu sviði um ókomin ár. Verksmiðjurnar gera fyrirtækinu kleift að bjóða upp á fjölbreytt úrval lýsisafurða í hæsta gæðaflokki.
Aðalverksmiðja og höfuðstöðvar Lýsis eru í Reykjavík, en þess utan er fyrirtækið með lifrarbræðslu, hausaþurrkun og framleiðslu á gæludýrafóðri í Þorlákshöfn. Þá á Lýsi niðursuðuverksmiðjuna Akraborg.