ÍSFIRÐINGUR - FISKVINNSLAN HREFNA
Fiskvinnslan Hrefna á Flateyri framleiðir vörur undir nafninu Ísfirðingur. Fyrirtækið er með þrjár vörur: reyktur lax, grafinn lax og reyktur regnbogi.
Eigandi og framkvæmdastjóri er Önfirðingurinn Hrefna Valdimarsdóttir, en hún var síðast verkstjóri í fiskvinnslu West Seafood ehf.
Fyrirtækið kaupir laxinn af Arctic Fish og silunginn af ÍS 47.
Allar frekari upplýsingar um Fiskvinnsluna má finna á facebook.