VELLIR
Vellir í Svarfaðardal
Á Völlum í Svarfaðardal er lífræn ræktun á berjum, grænmeti og kryddjurtum. Eigendur jarðarinnar eru Bjarni Óskarsson, veitingamaður og eiginkona hans Hrafnhildur Ingimarsdóttir.
Í litlu sveitabúðinni á Völlum er hægt að kaupa alls kyns vörur beint frá býli. Þar er einnig rekinn veislusalur fyrir hópa. Allar frekari upplýsingar má finna á facebook.