
Reyktur salatostur frá Völlum.
Vellir
Á Völlum í Svarfaðardal er ræktun á berjum, grænmeti og kryddjurtum. EIgendur jarðarinnar eru Bjarni Óskarsson, veitingamaður og eiginkona hans Hrafnhildur Ingimarsdóttir. Í litlu sveitabúðinni á Völlum er hægt að kaupa alls kyns vörur beint frá býli. Þar er einnig rekinn veislusalur fyrir hópa. Allar frekari upplýsingar má finna á facebook.