SÆLKERASINNEP SVÖVU
Svava H. Guðmundsdóttir er hugmyndasmiðurinn að Sælkerasinnepi Svövu sem framleitt er á Íslandi en byggt á sænskum sið og hefðum. Sælkerasinnep Svövu fæst nú í þremur bragðtegundum, sterkt með sætukeim, með aðalbláberjum og blóðbergi og það þriðja með kúmeni og ákavíti. Sinnepið er gott á grillmat, með grænmeti og með reyktum mat.
Svava notar bjór í uppskriftinni sem kemur frá Kalda að norðan. Upphaflega notaði Svava sinnepið til að glasera sænsku jólaskinkuna og hamborgarahrygginn en þróaði síðan fleiri bragðtegundir eftir ábendingum frá viðskiptavinum sínum.
Smella hér til að fara inn á facebooksíðu Sælkerasinnep Svövu