Harðfiskur frá Ísafirði - Fiskverkun Finnboga

2.290 kr

Vörunúmer: 4000584001 Fiskverkun Finnboga

aðeins 3 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Hrein náttúruafurð, harðfiskurinn er útiþurkkaður í hjalli í vestfirskum vetrarvindum og unninn eftir aldagamalli hefð. Kolvetna- og sykurlaus hollustuvara rík af próteinum.

Geymist í kæli við 0-4°C.

Innihaldslýsing

Innihald: Ýsa, salt.

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g:

  • Orka 1390 kJ / 331 kkal
  • Prótein 76g
  • Fita (Omega 3) 2,5g
  • Kolvetni 0g
  • Trefjar 0g
  • Steinefni 0,74g
  • Vatn 15,1g
  • Salt 2,3g
Fiskverkun Finnboga

Harðfiskverkunin var stofnuð 1985 af Finnboga Jónassyni. Fiskverkun Finnboga herðir Ýsu, Steinbít, Þorsk og Lúðu.  Harðfiskurinn er þurrkaður eftir aldagamalli hefð í hjöllum í Vestfirsku sjávarlofti.

Fyrstu árin var allt hert í hjalli á Eyrarhlíð sem enn er í notkun, en seinna var keyptur stór hjallur í Arnardal þar sem megnið af fiskinum er þurrkað í dag.

Öll framleiðslan er hjallþurrkuð, ekkert er inniþurrkað og er hengt á hjall frá mánaðamótum sept- okt og fram að mánaðamótum apríl – maí, fer það nokkuð eftir veðri. Einungis er hengt upp í köldu veðri, svo bestu gæðum sé náð.

Fiskurinn er fullur af prótíni en snauður af fitu og kolvetnum.  Náttúrulega hrein afurð stútfull af hollustu.