Berjasaft - Erpsstaðir

790 kr

Vörunúmer: 3710121003 Erpsstaðir

aðeins 3 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Berjasaft

Berjasaft frá Erpsstöðum.

Þrjár stærðir:

  • 40ml
  • 187ml
  • 500ml

Drekkist kalt.

Innihaldslýsing

Innihald: Mysa frá búinu (mjólkurafurð), íslenskur berjardjús, krækiber og bláber (24%), hrásykur (5%).

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g

  • Orka 168 kJ / 40 kkal
  • Fita 0,1g
  • - þar af mettaðar fitusýrur 0g
  • Kolvetni 9,7g
  • - þar af sykurtegundir 9,7g
  • Prótein 0,2g
  • Salt 0,1g
Rjómabúið Erpsstöðum

Rjómabúið Erpsstaðir hóf starfsemi í byrjun apríl 2009, með framleiðslu á rjómaís. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Árlega leggja þúsundir gesta leið sína til Erpsstaða, en þar er fínasta aðstaða til áningar á leiðinni vestur. Ísinn sem framleiddur er á Erpsstöðum ber heitið Kjaftæði og þykir hann einstaklega bragðgóður. Í boði eru margar bragðtegundir en notast er við ýmis bragðefni úr íslenskri náttúru, svo sem rabarbara, fíflasíróp og ber. Auk íss eru í boði ostar eins og Útlaginn og hið fræga skyrkonfekt sem er sérhönnuð sælkeravara.

Vorið 2018 var opnuð sýning um skyr og skyrgerð á Erpsstöðum, en vegna ísframleiðslunnar fellur til óhemju magn af undanrennu sem er umbreytt í gamaldags sveitaskyr. „Íslenska skyrið er orðið hluti af Slow food sem eru alþjóðleg samtök sem vilja hvetja til smáframleiðslu og að fólk neyti sem mest vara sem framleiddar eru í nágrenni hvers og eins. Skyrið okkar var valið inn sem Presidium fyrir nokkrum árum, en um er að ræða viðurkenningu vegna notkunar á hefðbundnum aðferðum við framleiðslu á matvörum”.

Allar frekari upplýsingar um rjómabúið má finna á facebook.

Rjómabúið Erpsstöðum