
Lækjarbotnableikja
Guðlaugur Kristmundsson og eiginkona hans Jónína Þórðardóttir er fólkið á bak við Lækjarbotnableikju. Bleikjueldið á Lækjarbotnum þróaðist út frá vaxtarsprotaverkefni sem Guðlaugur tók þátt í haustið 2007. Þá um haustið var strax hafist handa við undirbúning á fiskeldinu eins og það er í dag. Öll fiskverkun fer fram í 40 feta frystigámi, sem er innréttaður samkvæmt þeim kröfum sem heilbrigðiseftirlitið gerir kröfu um. Ársframleiðsla er um 20 tonn. Allur fiskur er flakaður, snyrtur og pakkaður í neytendaumbúðir.
Allar frekari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess: www.laekjarbotnar.is
Lindarfiskur
Fjölskyldufyrirtækið Lindarfiskur elur bleikjurnar sína í ísköldu vatni sem rennur úr Vatnajökli og síast langa leið í gegnum Eldhraunið. Lindarfiskur elur fiskinn sinn upp frá hrogni upp í sláturstærð. Allur úrgangur sem til fellur úr eldinu er notaður í áburð.