
Bónda-Biti
Ostur frá rjómabúinu á Erpsstöðum.
Kælivara 4°C – Geymist í kæli
Innihaldslýsing
Innihald: Mjólk, salt, mjólkursýrugerlar, hleypir
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g:
- Orka 1650 kJ / 399 kkal
- Fita 33g
- - þar af mettuð fita 22g
- Kolvetni 4g
- - þar af sykurtegundir 4g
- Prótein 21g
- Salt 2g
Erpsstaðir
Rjómabúið Erpsstaðir hóf starfsemi í byrjun apríl 2009, með framleiðslu á rjómaís. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Árlega leggja þúsundir gesta leið sína til Erpsstaða, en þar er fínasta aðstaða til áningar á leiðinni vestur. Ísinn sem framleiddur er á Erpsstöðum ber heitið Kjaftæði og þykir hann einstaklega bragðgóður. Í boði eru margar bragðtegundir en notast er við ýmis bragðefni úr íslenskri náttúru, svo sem rabarbara, fíflasíróp og ber. Auk íss eru í boði ostar eins og Útlaginn og hið fræga skyrkonfekt sem er sérhönnuð sælkeravara.
Vorið 2018 var opnuð sýning um skyr og skyrgerð á Erpsstöðum, en vegna ísframleiðslunnar fellur til óhemju magn af undanrennu sem er umbreytt í gamaldags sveitaskyr. „Íslenska skyrið er orðið hluti af Slow food sem eru alþjóðleg samtök sem vilja hvetja til smáframleiðslu og að fólk neyti sem mest vara sem framleiddar eru í nágrenni hvers og eins. Skyrið okkar var valið inn sem Presidium fyrir nokkrum árum, en um er að ræða viðurkenningu vegna notkunar á hefðbundnum aðferðum við framleiðslu á matvörum”.
Rjómabúið Erpsstöðum ehf., Erpsstöðum, 371 Búðardalur.
Allar frekari upplýsingar um rjómabúið má finna á facebook.