
Íslenskar byggflögur, lífrænt vottaðar - 800g
Góðar í graut og rasp.
Byggfjögur Móður Jarðar eru góður íslenskur valkostur í grauta, bakstur (brauð, lummur, vöfflur, kökur og kex), slátur, múslí, orkudrykki ("boost") og aðra matargerð.
Gott er að rista flögurnar á þurri pönnu til að nota í múslí o.fl. Byggflögurnar eru unnar úr bygginu (kaldvalsaðrar) eins og það kemur fyrir og innihalda því næringarefni úr hýðinu. Þær eru trefjaríkar og stuðla trefjaefnin að heilbrigði meltingarvegarins. Í byggi eru bæði vatnsleysanleg og óleysanleg trefjaefni. Með byggflögunum öðlast gamli góði hafragrauturinn nýtt líf úr íslensku hráefni.
Næringarinnihald
Næringargildi í 100 gr.:
- Orka 1440 kJ/341 kkal
- Fita 2g
- - þar af mettuð fita 0,4g
- Kolvetni 64g
- - þar af sykurtegundir 0,5g
- Trefjar 10g
- Prótein 12g
- Betaglúkanar 2,1g
- Salt 0g.
Móðir jörð
Móðir Jörð ræktar og framleiðir íslensk matvæli úr jurtaríkinu. Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði er fyrirtæki í lífrænni ræktun og matvæla-framleiðslu.
Fyrirtækið leggur stund á korn- og grænmetisræktun og framleiðir tilbúnar hollustu- og sælkeravörur.Móðir Jörð er í eigu hjónanna Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur. Allar vörur frá Móðir Jörð eru lífrænt vottaðar hjá Tún vottunarstofu.