
Te með villtum íslenskum jurtum.
Jurtirnar í þessu tei eru taldar hafa róandi áhrif og eru vinsælar gegn svefnleysi. Beitilyng er einnig talið hreinsandi, bakteríudrepandi og verkjastillandi. Vallhumall er sagður styrkjandi og slakandi. Einnig má nota tepokana í bað og notaða tepoka til að leggja yfir þreytt augu.
Lagið með heitu vatni. Látið trekkja í 6-15 mínútur, helst undir loki. Hægt er að nota pokann oftar en einu sinni.
Innihaldslýsing
Innihald: Beitilyng, vallhumall.
Framleiðandi
Urta Islandica ehf., Austurgötu 47, 220 Hafnarfirði