Fennelgló. Sultað fennel og rauðrófur með stjörnuanís.
Þessi nýstárlega grænmetisblanda ber með sér frískandi keim af lakkrís. Sérstaklega gott með læri, villibráð, grænmetis- og fiskréttum. Góður bragðauki í salöt.
Geymist í kæli eftir opnun.
Innihaldslýsing
Innihald: Rauðrófur, hnúðkál, fennel (12%), hrásykur, eplaedik, eplasafi, engifer, sjávarsalt, stjörnuanís, svartur pipar. Vottað lífrænt.
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g er u.þ.b.:
- Orka 317 kJ / 76 kkal
 - Fita 1g
 - - þar af mettaðar fitusýrur 0,1g
 - Kolvetni 13g
 - - þar af sykur 12g
 - Trefjar 6g
 - Prótein 0,8g
 - Salt 0,5g
 
Móðir jörð
Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði ræktar og framleiðir íslensk matvæli úr jurtaríkinu. Fyrirtækið býður lífrænt ræktaðar, hollar og bragðgóðar afurðir sem framleiddar eru í sátt við náttúruna.
Móðir Jörð er í eigu hjónanna Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur.