Nú er hægt að baka hina fullkomnu hjónabandssælu. Kökumix og rabarbarasulta frá Litlabýli á Flateyri.
Bökunarleiðbeiningar
- Hitið opninn í 190°C
- Blandið saman kökumixinu ásamt 115g af bræddu smjöri og einu eggi (fylgir ekki með)
- Takið u.þ.b. 1/3 af deiginu til hliðar til að eiga ofan á kökuna
- Setjið deigið jafnt í hringlaga form (u.þ.b. 25cm í þvermál) og þrýstið létt ofan á það.
- Dreifið úr einni krukku af Litlabýlis rabbarbarasultu jafnt yfir deigið
- Myljið afgaginn af deiginu sem tekið var frá ofan á sultuna.
- Bakið í 30-40 mín eða þar til kakan er gullinbrún.
Innihaldslýsing
Innihald (kökumix): Hveiti, haframjöl, kókosmjöl, sykur, matarsódi, lyftiduft.
Innihald (rabarbarasulta): Rabarbari, sykur, vanilla
Litlabýli
Litlabýli er lítið gistihús á Flateyri. Margar fjöskyldur hafa búið í húsinu í gegnum árin, en nú er það notað sem gistihús. Fjölskyldan sem framleiðir kökumixið og á húsið býr einnig á Flateyri.