
Byggmjólkin frá Kaja organic er jurtadrykkur unninn úr íslensku byggi. Byggið er talið stuðla að lækkun kólestróls í blóði, styrkjaónæmiskerfið, bæta meltinguna, bæta slímhúð í ristli og jafna blóðsykur.
Geymist í 4-5 daga í kæli eftir opnun. Hristist fyrir notkuun.
Innihaldslýsing
Innihald: Vatn, bygg (7%), sólblómaolía, sjávarsalt.
Næringarinnihald
Næringargildi í 100ml:
- Orka 168 kJ /40 kkal
- Prótein 0,5g
- Kolvetni 4,8g
- - þar af sykur 0,06g
- Fita 1,96g
- - þar af mettuð fita 0,22g
- Trefjar 0,57g
- Salt 0,18g
Kaja organic ehf
Kaja organic ehf. er í eigu Karen Emilíu Jónsdóttur og var stofnað í mars 2013. Slagorð fyrirtækisins er "lífrænt fyrir alla" og er þá m.a. verið að vísa í verðstefnu fyrirtækisins og þeirri hugsjón að heimurinn verði lífrænn eins og hann var í upphafi síðustu aldar.
Fyrirtækið hefur jöfnuð að leiðarljósi "að allir sitji við sama borð" þegar að viðskiptum kemur, því eru engir afslættir veittir - sama verð fyrir alla. Ef hagstæðari verð nást hjá birgjum þá njóta allir viðskiptavinir Kaja organic þess.