
Ostur frá rjómabúinu á Erpsstöðum. Harri er harður ostur sem gott er að raspa út á t.d. pasta. Áferðin á Harra líkist helst parmesan osti.
Kælivara 4°C – Geymist í kæli
Innihaldslýsing
Innihald: Mjólk, salt, mjólkursýrugerlar, hleypir
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g:
- Orka 1580 kJ / 381 kkal
- Fita 31g
- - þar af mettuð fita 20g
- Kolvetni 4g
- - þar af sykurtegundir 4g
- Prótein 21g
- Salt 2g
Erpsstaðir
Rjómabúið Erpsstaðir hóf starfsemi í byrjun apríl 2009, með framleiðslu á rjómaís. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Árlega leggja þúsundir gesta leið sína til Erpsstaða, en þar er fínasta aðstaða til áningar á leiðinni vestur. Ísinn sem framleiddur er á Erpsstöðum ber heitið Kjaftæði og þykir hann einstaklega bragðgóður.
Í boði eru margar bragðtegundir en notast er við ýmis bragðefni úr íslenskri náttúru, svo sem rabarbara, fíflasíróp og ber. Auk íss eru í boði ostar eins og Útlaginn og hið fræga skyrkonfekt sem er sérhönnuð sælkeravara.
Vorið 2018 var opnuð sýning um skyr og skyrgerð á Erpsstöðum, en vegna ísframleiðslunnar fellur til óhemju magn af undanrennu sem er umbreytt í gamaldags sveitaskyr. „Íslenska skyrið er orðið hluti af Slow food sem eru alþjóðleg samtök sem vilja hvetja til smáframleiðslu og að fólk neyti sem mest vara sem framleiddar eru í nágrenni hvers og eins. Skyrið frá Erpsstöðum var valið inn sem Presidium fyrir nokkrum árum, en um er að ræða viðurkenningu vegna notkunar á hefðbundnum aðferðum við framleiðslu á matvörum”.
Rjómabúið Erpsstöðum ehf., Erpsstöðum, 371 Búðardalur
Allar frekari upplýsingar um rjómabúið má finna á facebook.