Mysukex - Erpsstaðir

890 kr

Vörunúmer: 3710102001 Erpsstaðir

aðeins 9 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Kex úr mysu, fræjum og fjallagrösum. 

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g:

  • Orka 2185 kJ / 526 kkal
  • Fita 35,7g
  • - þar af mettuð fita 4,6g
  • Kolvetni 31,3g
  • - þar af sykurtegundir 1,4g
  • Trefjar 11,9g
  • Prótein 13,8g
  • Salt 1,9g
Rjómabúið Erpsstöðum

Rjómabúið Erpsstaðir hóf starfsemi í byrjun apríl 2009, með framleiðslu á rjómaís. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Árlega leggja þúsundir gesta leið sína til Erpsstaða, en þar er fínasta aðstaða til áningar á leiðinni vestur. Ísinn sem framleiddur er á Erpsstöðum ber heitið Kjaftæði og þykir hann einstaklega bragðgóður.

Í boði eru margar bragðtegundir en notast er við ýmis bragðefni úr íslenskri náttúru, svo sem rabarbara, fíflasíróp og ber. Auk íss eru í boði ostar eins og Útlaginn og hið fræga skyrkonfekt sem er sérhönnuð sælkeravara.

Vorið 2018 var opnuð sýning um skyr og skyrgerð á Erpsstöðum, en vegna ísframleiðslunnar fellur til óhemju magn af undanrennu sem er umbreytt í gamaldags sveitaskyr. „Íslenska skyrið er orðið hluti af Slow food sem eru alþjóðleg samtök sem vilja hvetja til smáframleiðslu og að fólk neyti sem mest vara sem framleiddar eru í nágrenni hvers og eins. Skyrið frá Erpsstöðum var valið inn sem Presidium fyrir nokkrum árum, en um er að ræða viðurkenningu vegna notkunar á hefðbundnum aðferðum við framleiðslu á matvörum”.

Allar frekari upplýsingar um rjómabúið má finna á facebook.

Rjómabúið Erpsstöðum