Lamb Jerky, Sea Salt and Herbs - Feed the Viking

550 kr

Vörunúmer: 1110105005 Feed the Viking

aðeins 3 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Hver poki inniheldur 50g af marineruðu, loftþurrkuðu, fyrsta flokks íslensku lambakjöti af lambi sem hafa gengið um frjálst á fjalli.

Um vöruna

Íslenska lambið hefur fengið að ganga frjálst um íslensku fjöllin síðan árið 874. Vegna þess hve sumrin eru stutt og hve kælitæknin var komin stutt á veg þurftu Víkingarnir að loftþurrka kjötið sitt.

Við hjá Feed the Viking höfum fullkomnað tækni þeirra og hvetjum þig til að prófa þessa ofurfæðu Víkinganna, jafnvel hafa með Mjöð og öskra Skál eins hátt og þú getur á meðan þú slærð glasinu þínu í glös vina þinna.

Lamb Jerky bætir nýrri vídd við núverandi snakkvenjur þínar en það er hið fullkomna snarl fyrir íþróttir, við vinnuna og í ævintýrin með endurlokanlegar umbúðir og hágæða prótein.

Innihaldslýsing

Innihald: Íslenskt lambakjöt (Ovis aries) unnið úr heilum vöðvum af læri (225 g af hráu kjöti þarf til að framleiða 100 g af Jerky), kryddblandan okkar, náttúrulegt þrávarnarefni (E316) og náttúrulegt rotvarnar-efni (E202).

Ofnæmisvaldar: Þessari vöru er pakkað í sömu aðstöðu og við pökkum Fish Jerky og gæti hún því innihaldið agnir af þorsk.

Þessi vara er: Án Glutens og án Lactosa.

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g:

  • Orka 1260 kJ / 300 kkal
  • Fita 12g
  • - þar af mettuð 6g
  • Kolvetni 6g
  • - þar af sykur 5,4g
  • Prótein 42g
  • Salt 3,3g
Feed the Viking

Feed the Viking er íslenskt sprotafyrirtæki, stofnað árið 2016, sem starfar með það að markmiði að auka virði íslenskra matvæla. Félagið þróar, framleiðir og selur matvörur úr íslensku lambi, nauti og þorski.

Vörurnar eru annarsvegar Jerky sem er loftþurrkað kjöt og harðfiskur í snakkformi og hinsvegar Fjallamatur sem eru frostþurrkaðar máltíðir.

Jerky afurðirnar eru fjórar; Lamb Jerky, Beef Jerky, Fish Jerky og Fish Jerky með hvítum Cheddarosti og Fjallamatar afurðirnar þrennskonar; Lamb Stew, Fish Soup og Vegan Stew.