Hvítkál, lífrænt vottað - Móðir jörð

634 kr

Vörunúmer: 7010131005 Móðir jörð

Vara væntanleg

á þeim tíma

sem þér hentar

Framleiðsla á íslensku grænmeti hefur aukist mikið á síðustu árum.  Sömuleiðis er framleiðslan nú mun fjölbreyttari en hún var fyrir nokkrum árum.  Neysla grænmetis hefur einnig vaxið enda er grænmeti hollur og góður kostur. Mikil grænmetis- og ávaxtaneysla getur minnkað líkur á æðakölkun,lækkað blóðþrýsting, minnkað kólesterólmyndun í líkamanum, haft góð áhrif á ónæmiskerfið og efnaskipti hormóna, hjálpað til við stjórnun líkamsþyngdar auk þess að veita seddutilfinningu. Rífleg neysla grænmetis og ávaxta getur því minnkað líkur á mörgum krónískum sjúkdómum, s.s. hjarta- og æðasjúkdómum, ýmsum tegundum krabbameina, sér í lagi í meltingarfærum og lungum.

Móðir Jörð 

Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdal býður lífrænt ræktaðar, hollar og bragðgóðar afurðir sem framleiddar eru í sátt við náttúruna. Fyrirtækið leggur  stund á korn- og grænmetisræktun og framleiðir tilbúnar  hollustu- og sælkeravörur. Móðir Jörð er í eigu hjónanna Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur. 

www.modirjord.is