Barnaolía Esjar - Hraundís

2.990 kr

Vörunúmer: 3200207003 Hraundís

aðeins 4 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Barnaolían Esjar er sérhönnuð fyrir börn. Hún er góð fyrir viðkvæma húð barna og hentar vel til að nudda þau með. Hún hentar einstaklega vel til að nudda börn á kvöldin til að róa þau og sefa, svo þau nái dýpri svefn og ró. Einnig er gott að nudda magann á þeim til að róa meltinguna. 

Notkunarleiðbeiningar: Berið á þurra og hreina húð.

Innihaldslýsing

Olían inniheldur þrjú náttúruleg lífrænt vottuð efni sem eru jójóbaolía, lavander ilmkjarnaolía og íslensk stafafura ilmkjarnaolía.

Framleiðandinn
Framleiðandinn Hraundís Guðmundsdóttir útskrifaðist sem ilmolíufræðingur frá Lífsskólanum 2007. Hún rak nuddstofu í Reykholtsdal í mörg ár þar sem hún blandaði ilmkjarnaolíur í nuddolíur til að hjálpa fólki við ýmsum kvillum.

Hún gekk með þann draum í mörg ár að framleiða ilmkjarnaolíur á jörðinni Rauðsgili þar sem hún býr. Í janúar 2015 fór hún út til Sedona í Arizona til að læra eimingu plantna hjá fyrirtækinu Phebee aromatic. Hjónin Max og Clare Licher reka það fyrirtæki og komu síðan til Íslands og aðstoðuðu við að koma framleiðslunni af stað á Rauðsgili. Hraundís er búin að vera í tilrauna eimingu síðan við ýmsar tegundir plantna sem vaxa í náttúru Íslands.