Hún gekk með þann draum í mörg ár að framleiða ilmkjarnaolíur á jörðinni Rauðsgili þar sem hún býr. Í janúar 2015 fór hún út til Sedona í Arizona til að læra eimingu plantna hjá fyrirtækinu Phebee aromatic. Hjónin Max og Clare Licher reka það fyrirtæki og komu síðan til Íslands og aðstoðuðu við að koma framleiðslunni af stað á Rauðsgili. Hraundís er búin að vera í tilrauna eimingu síðan við ýmsar tegundir plantna sem vaxa í náttúru Íslands.

Draumadís er róandi og sefandi olía til að róa huga og sál. Olían er borin á úlnlið og háls eftir þörfum fyrir þá sem eru stressaðir eða með kvíða. Mjög gott er að nota Draumadís fyrir svefn þar sem hún er róandi fyrir hugann og slakandi.
Draumadís inniheldur lífræna lavender ilmkjarnaolíu sem er einstaklega róandi og sefandi. Vanillu sem er í senn upplífgandi og róandi. Birki ilmkjarnaolíu sem róar hugann og er góð fyrir húðina.
Notkunarleiðbeiningar: Berist á háls eða bakvið eyru, þar sem ilmur berst að vitum.
Innihaldslýsing
jójóbaolía, lífræn lavender ilmkjarnaolía, lífræn vanillu ilmkjarnaolía og íslensk birki ilmkjarnaolía.
Framleiðandinn
Framleiðandinn Hraundís Guðmundsdóttir útskrifaðist sem ilmolíufræðingur frá Lífsskólanum 2007. Hún rak nuddstofu í Reykholtsdal í mörg ár þar sem hún blandaði ilmkjarnaolíur í nuddolíur til að hjálpa fólki við ýmsum kvillum.