Hún gekk með þann draum í mörg ár að framleiða ilmkjarnaolíur á jörðinni Rauðsgili þar sem hún býr. Í janúar 2015 fór hún út til Sedona í Arizona til að læra eimingu plantna hjá fyrirtækinu Phebee aromatic. Hjónin Max og Clare Licher reka það fyrirtæki og komu síðan til Íslands og aðstoðuðu við að koma framleiðslunni af stað á Rauðsgili. Hraundís er búin að vera í tilrauna eimingu síðan við ýmsar tegundir plantna sem vaxa í náttúru Íslands.

Hraunar skeggolían nærir og mýkir skeggið. Hún hjálpar til við kláða í húðinni undir skegginu þar sem húðin verður þur og næringarsnauð. Einstök blanda sem er nærandi og rakagefandi til að viðhalda fallegu skeggi. Hún inniheldur mildan frískandi skógarilm sem er hæfinlega mikill..
Notkunarleiðbeiningar: Berist í þurrt og hreint skegg.
Innihaldslýsing
Jójóbaolía, stafafura íslensk ilmkjarna olía, lífræn sandalwood ilmkjarna olía.
Framleiðandinn
Framleiðandinn Hraundís Guðmundsdóttir útskrifaðist sem ilmolíufræðingur frá Lífsskólanum 2007. Hún rak nuddstofu í Reykholtsdal í mörg ár þar sem hún blandaði ilmkjarnaolíur í nuddolíur til að hjálpa fólki við ýmsum kvillum.