
Fæðubótarefni - náttúrulegt kísilsteinefni úr íslensku jarðhitavatni með magnesíum.
GeoSilica kísilsteinefnið er framleitt úr jarðhitavatni frá miklu dýpi háhitasvæða Íslands og er án allra rotvarnar- og aukaefna.
Recover inniheldur 100% náttúrulegan jarðhitakísil og magnesíum í hreinu íslensku vatni. Magnesíum stuðlar að eðlilegri virkni vöðva- og taugakerfis.
100% náttúrulegur jarðhitakísill
- Inniheldur kísil og magnesíum
- Hjálpar við virkni vöðva og prótein framleiðslu
- Bætir jafnvægi salta í líkamanum
- Bætir líkamlega frammistöðu
- Dregur úr bólgum
Ráðlagður dagskammtur - 1 matskeið (10 ml) á dag.
Hristist fyrir notkun.
Hægt að blanda í vatn eða safa.
Innihaldslýsing
Innihald: Vatn, jarðhitakísill, magnesíumsítrat.
Athugasemdir
Geymist á þurrum og köldum stað. Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki er mælt með að neyta meira en sem nemur ráðlögðum dagskammti. Geymist í kæli eftir opnun og notist innan 3 mánaða. Varan er ekki ætluð ófrískum konum. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreytts og hefðbundins matarræðis. Þessi vara er ekki ætluð til að greina, lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma.