
Turmerik-Kanil drykkur 700ml
Túrmerik drykkirnir samanstanda af gæða hráefnum sem öll hafa ákveðinn tilgang og virkni. Meginuppistaðan í drykkjunum eru túrmerik og engifer rætur sem sífellt meira er verið að rannsaka til að kanna virkni þeirra og áhrif á mannslíkamann.
Megintilgangur með framleiðslu drykkjanna er að bæta heilsu fólks m.a. með því að draga úr bólgum, bæta kólesteról jafnvægið í blóðinu og efla hreinsun líkamans.
Ráðlögð neysla og notkun. Best er að neyta drykkjanna á fastandi maga á hverjum morgni. Sérfræðingar mæla með að neyta frá 500 mg til 2.000 mg af túrmerik á dag til að líkaminn verði fyrir öllum jákvæðu áhrifaþáttum túrmerik rótarinnar.
Í 100 ml af túrmerik drykk, sem er magnið sem við erum að ráðleggja að drekka hvern morgun, eru ca 2.000 mg af túrmerikrót sem er þá vel nægjanlegt.
Drykkirnir henta vel í matargerð, t.d. í pottrétti, súpur, sem marineringu og bland í djúsa sem fyrirbyggjandi fyrir börn. Sumir kreista sítrónu útí drykkinn eða bæta við hunangi til að milda hann. Gott er einnig að blanda drykkinn í smá ananassafa til mildunar og frekari virkjun kúrkúma, virka efnis túrmerik rótarinnar.
Við kvefi eða hálsbólgu er gott að hita drykkina áður en þeirra er neytt.
Geymist í 14 daga í kæli eftir opnun. Hristist fyrir notkun.
Laktósafrítt, glúteinlaust.
Turmeric - Kanil drykkurinn var fyrsti drykkurinn sem Isqueeze Ísland þróaði og kom á markað síðla árs 2014. Hann fæst í 700 ml glerflöskum og inniheldur einungis hágæða hráefni eins og ferska túrmerik rót, ferska engifer rót, akasíuhunang, svartan pipar og kanil bragðefni.
Innihaldslýsing
Innihaldsefni: Vatn 84,8% - Engifer 9,3% - Turmeric 2,3% - Hunang 2,5% - Turmeric krydd 0,5% - Svartur pipar 0,1% - Askorbinsýra 0,2% - Kalíum sorbat 0,1% - Xanthan gúmmi 0,1% - Kanil bragðefni 0,1%.
Gæti innihaldið snefilmagn af hnetum.
Næringarinnihald
Næringargildi í 100ml:
- Orka 21 kkal
- Fita 0,4g
- - þar af mettuð fita 0,1g
- Kolvetni 4g
- - þar af sykurtegundir 0,7g
- Trefjar 0,8g
- Prótein 0,4g
- Salt 0,01g