
Íslenskt steinmalað byggmjöl - 1kg
Byggmjöl Móður Jarðar er ferskt íslenskt mjöl sem gefur hollustu og gott bragð í bakstur og matargerð. Það má t.d. nota í brauð, kex og pizzubotna og tilvalið er að nota það sem rasp t.d. á grænmetisbuff, fisk og kjöt.
Hæfilegt er í brauðbakstri að nota u.þ.b. 25-50% byggmjöl á móti öðru mjöli.
Gott er að bæta starfsemi ristilsins með því að taka inn 2-3 msk af byggmjöli með morgunmatnum (gott er að láta mjölið liggja í vatni yfir nótt).
Uppskriftir á www.vallanes.is
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g:
- Orka 1440 kJ / 341 kkal
- Fita 2g
- - þar af mettuð fita 0,4g
- Kolvegni 64g
- þar af sykurtegundir 0,5g
- Trefjar 10g
- Prótein 12g
- Betaglúkanar 3g
- Salt 0g
Móðir jörð
Móðir Jörð ræktar og framleiðir íslensk matvæli úr jurtaríkinu. Fyrirtækið býður lífrænt ræktaðar, hollar og bragðgóðar afurðir sem framleiddar eru í sátt við náttúruna.
Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði er fyrirtæki í lífrænni ræktun og matvæla-framleiðslu. Fyrirtækið leggur stund á korn- og grænmetisræktun og framleiðir tilbúnar hollustu- og sælkeravörur.
Móðir Jörð er í eigu hjónanna Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur.