
Byggkex frá Kaja organic er úr íslensku byggi frá Vallanesi 100g.
Innihaldslýsing
Innihald: Hveiti (30%), bygghrat (10%), reyrsykur, olía, egg, vínsteinslyftiduft (maískornmjöl, vínsteinn), matarsódi.
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g:
- Orka 1749 kJ / 415 kkal
- Prótein 7,3g
- Kolvetni 56,7g
- - þar af sykur 10,6g
- Fita 16,8g
- - þar af mettuð fita 0,47g
- Trefjar 3,7g
- Salt 0,95g.
Kaja organic ehf
Kaja organic ehf. er í eigu Karen Emilíu Jónsdóttur og var stofnað í mars 2013. Slagorð fyrirtækisins er "lífrænt fyrir alla" og er þá m.a. verið að vísa í verðstefnu fyrirtækisins og þeirri hugsjón að heimurinn verði lífrænn eins og hann var í upphafi síðustu aldar.
Fyrirtækið hefur jöfnuð að leiðarljósi "að allir sitji við sama borð" þegar að viðskiptum kemur, því eru engir afslættir veittir - sama verð fyrir alla. Ef hagstæðari verð nást hjá birgjum þá njóta allir viðskiptavinir Kaja organic þess.