
Sorbet frá Erpsstöðum
Erpsstaðir framleiða frábært sorbet - 500g
Bragðtegundir:
- Jarðaber
- Rabarbara
- Sítrónubragð
Geymist í frysti við -18°C
Innihaldslýsing
Jarðaberja sorbet
Innihald: Jarðaber (50%), sykur, þrúgusykur, vatn, sítrónusafi. Þykkiefni: Kragen, karob gúmmí úr náttúrulegri ræktun.
Rabarbara sorbet
Innihald: Rabarbari, sykur, þrúgusykur, vatn, sítrónusafi. Þykkiefni: Kragen, karob gúmmí úr náttúrulegri ræktun.
Getur innihaldið snefil af mjólk, eggjum og hnetum.
Rjómabúið Erpsstöðum
Rjómabúið Erpsstaðir hóf starfsemi í byrjun apríl 2009, með framleiðslu á rjómaís. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Árlega leggja þúsundir gesta leið sína til Erpsstaða, en þar er fínasta aðstaða til áningar á leiðinni vestur. Ísinn sem framleiddur er á Erpsstöðum ber heitið Kjaftæði og þykir hann einstaklega bragðgóður. Í boði eru margar bragðtegundir en notast er við ýmis bragðefni úr íslenskri náttúru, svo sem rabarbara, fíflasíróp og ber. Auk íss eru í boði ostar eins og Útlaginn og hið fræga skyrkonfekt sem er sérhönnuð sælkeravara.
Vorið 2018 var opnuð sýning um skyr og skyrgerð á Erpsstöðum, en vegna ísframleiðslunnar fellur til óhemju magn af undanrennu sem er umbreytt í gamaldags sveitaskyr. „Íslenska skyrið er orðið hluti af Slow food sem eru alþjóðleg samtök sem vilja hvetja til smáframleiðslu og að fólk neyti sem mest vara sem framleiddar eru í nágrenni hvers og eins. Skyrið frá Erpsstöðum var valið inn sem Presidium fyrir nokkrum árum, en um er að ræða viðurkenningu vegna notkunar á hefðbundnum aðferðum við framleiðslu á matvörum”.
Allar frekari upplýsingar um rjómabúið má finna á facebook.