Tindur 12+ - MS

1.590 kr

Vörunúmer: 1100140007 MS

Vara væntanleg

á þeim tíma

sem þér hentar

Tindur er einstakur ostur sem hefur fengið að þroskast í 12 mánuði eða lengur - 330g.

Á þessum tíma nær hann hinu einkennandi bragði og verður bæði stökkur og bragðmikill en ber á sama tíma örlítið sætt eftirbragð.

Geymsluþol eftir opnun: 1-2 vikur í lokuðum umbúðum. Kælivara 0-4°C

Innihaldslýsing

Innihald: Mjólk, undanrenna, salt, ostahleypir, rotvarnarefni (E252)

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g:

  • Orka 1586 kJ/382 kcal
  • Fita 30g
  • - þar af mettuð 18g
  • Kolvetni 0g
  • - þar af sykurtegundir 0g
  • Prótein 28g
  • Salt 1,5g
  • Kalk 800mg (100% af næringarviðmiðunargildum) 
MS – Mjólkursamsalan

Mjólkursamsalan er rekstrarfélag mjólkuriðnaðarins á Íslandi og er í eigu um 600 kúabænda um land allt. Fyrirtækið er í eigu Auðhumlu (90,1%) og Kaupfélags Skagfirðinga (9,9%). Auðhumla er samvinnufélag u.þ.b. 600 kúabænda og fjölskyldna þeirra víðs vegar um landið. 

Mjólkursamsalan í núverandi mynd varð til við hagræðingu í mjólkuriðnaðinum sem hófst skipulega um miðjan tíunda áratuginn þegar stjórnvöld ákváðu að lækka þyrfti kostnað við vinnslu á mjólk. Sameinaðist rúmur tugur félaga í mjólkuriðnaði í færri einingar næsta áratuginn.

Mjólkursamsalan í núverandi mynd hefur starfað frá 2007. Elst fyrirtækið í þessu sameinaða félagi, MS, er Mjólkursamlag KEA, sem var stofnað á sérstökum fulltrúafundi Kaupfélagsins 4. Sep 1927, sem telst vera stofndagur MS.