Útlaginn - halloumi grillostur - Erpsstaðir

1.160 kr

Vörunúmer: 3710140081 Erpsstaðir

aðeins 1 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Útlaginn - Halloumiostur úr kúamjólk - margar stærðir (þyndir)

Notkun: Grilla eða steikja/djúpsteikja. 

Geymist í kæli 4°C 

Innihaldslýsing

Innihald: Mjólk, salt, mjólkursýrugerlar, hleypir. 

Næringarinnihald

Næringargildi í 100 g:

  • Orka 1580 kj/381kcal
  • Fita 31g
  • - þar af mettuð fita 22g
  • Kolvetni 4g
  • - þar af sykurtegundir 4g
  • Prótein 21g
  • Salt 3g
Rjómabúið Erpsstöðum

Rjómabúið Erpsstaðir hóf starfsemi í byrjun apríl 2009, með framleiðslu á rjómaís. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar.

Árlega leggja þúsundir gesta leið sína til Erpsstaða, en þar er fínasta aðstaða til áningar á leiðinni vestur. Ísinn sem framleiddur er á Erpsstöðum ber heitið Kjaftæði og þykir hann einstaklega bragðgóður.

Í boði eru margar bragðtegundir en notast er við ýmis bragðefni úr íslenskri náttúru, svo sem rabarbara, fíflasíróp og ber. Auk íss eru í boði ostar eins og Útlaginn og hið fræga skyrkonfekt sem er sérhönnuð sælkeravara.

Vorið 2018 var opnuð sýning um skyr og skyrgerð á Erpsstöðum, en vegna ísframleiðslunnar fellur til óhemju magn af undanrennu sem er umbreytt í gamaldags sveitaskyr. „Íslenska skyrið er orðið hluti af Slow food sem eru alþjóðleg samtök sem vilja hvetja til smáframleiðslu og að fólk neyti sem mest vara sem framleiddar eru í nágrenni hvers og eins.

Skyrið frá Erpsstöðum var valið inn sem Presidium fyrir nokkrum árum, en um er að ræða viðurkenningu vegna notkunar á hefðbundnum aðferðum við framleiðslu á matvörum”.

Allar frekari upplýsingar um rjómabúið má finna á facebook.

Rjómabúið Erpsstöðum