
Súrkál frá Vallanesi - 340g. Súrkál með sítrónu og steinselju. Safaríkt súrkál sem hentar vel með fiskréttum.
Við framleiðslu þessarar vöru beitum við hefðmundinni vinnsluaðferð sem kallar fram mjólkursýrugerla (lactobacillus) í vörunni sem bæta metlinguna. Grænmetið er úr eigin lífrænni ræktun.
Til að auka á styrkleikann má bæta við chilli.
Varan hefur ekki hlotið neina hitameðferð og geymist í kæli við 0-4°C
Súrkál er gott með flestum mat.
Innihaldslýsing
Innihald: Hnúðkál, hvítkál, steinselja, sítrónubörkur, hvítlaukur, sítrónusafi, salt.
Móðir jörð
Móðir Jörð ræktar og framleiðir íslensk matvæli úr jurtaríkinu. Fyrirtækið býður lífrænt ræktaðar, hollar og bragðgóðar afurðir sem framleiddar eru í sátt við náttúruna. Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði er fyrirtæki í lífrænni ræktun og matvæla-framleiðslu. Fyrirtækið leggur stund á korn- og grænmetisræktun og framleiðir tilbúnar hollustu- og sælkeravörur. Móðir Jörð er í eigu hjónanna Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur.