Jafnvægi - Pure Natura

4.998 kr

Vörunúmer: 5150106005 Pure Natura

aðeins 2 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Blandan Jafnvægi sameinar á einstakan hátt stuðning við hjarta og æðakerfi með hreinni næringu og sérvöldum jurtum.

Jafnvægi inniheldur fjölda góðra næringarefna fyrir hjarta og æðakerfi s.s. Co-ensím Q10 auk amínósýranna Taurine og Lysine en einnig kollagen og elastín sem nauðsynleg eru m.a. fyrir heilbrigðan tengivef, liðamót og meltingarveg.

Pure Heart inniheldur mikið af B12 vítamíni, sem stuðlar að eðlilegum efnaskiptum homocystein, eðlilegri myndun rauðra blóðkorna, dregur úr þreytu og sleni og styrkir ónæmiskerfið.

Blandan inniheldur: íslensk lambahjörtu, vallhumal, baldursbrá, burnirót og birki. JAFNVÆGI frá Pure Natura er fæðubótarefni í hylkjum úr frostþurrkuðum og möluðum hjörtum úr íslenskum lömbum og sérvöldum, íslenskum villijurtum.

Varan sækir innblástur í næringarfræði, hómópatíu og grasalækningar.

Blandan inniheldur öll þau næringarefni sem er að finna í okkar eigin hjartavöðva s.s. B12 og Coensím Q10, auk róandi, styrkjandi, bólgueyðandi og hreinsandi jurta. Þessi blanda er sérstaklega hugsuð fyrir þá sem vilja fara vel með sig og hjartað sitt og þá sem eru komnir á miðjan aldur. Einnig góð til skiptis við aðrar Pure Natura-vörur til að fá inn fjölbreyttari næringarefni og virkni.

JAFNVÆGI gefur næringu fyrir hjarta- og æðakerfi auk jurtavirkni sem m.a. jafnvægisstillir taugakerfið og hefur góð áhrif á neytandann og þar með hjartslátt og almenna líðan.

Varúðarráðstafanir: Fólk með heymæði eða astma ætti að gæta varúðar þegar jurtir eins og baldursbrá og vallhumall eru notaðar. Þær geta valdið versnun á einkennum. Baldursbrá getur aukið áhrif sumra blóðþynningarlyfja og vallhumall getur dregið úr blóðstorknun; Hætta skal inntöku hylkjanna a.m.k. 2 vikum fyrir áætlaðan uppskurð. Birki hefur væga þvagræsandi eiginleika, þeir sem taka þvagræsilyf þurfa að vera meðvitaðir um að ofþorna ekki ef þeir taka inn Pure Heart með slíkum lyfjum.

Pure natura

Á heimasíðu Pure Natura er að finna ýmsan fróðleik um fyrirtækið sem framleiðir bætiefni úr sláturafurðum sem eru vannýttar til manneldis.  Þar segir: Framlag Pure Natura er fjölþætt. Við breytum úrgangi í auðlind með því að nýta innmat sem fellur til við dilkaslátrun og er vannýttur til manneldis núorðið. Fullnýting hráefnis í landbúnaði þarf að verða að veruleika sem allra fyrst og þetta er vissulega innlegg í það.  Pure Natura er rekið af konum og þar starfa eingöngu konur. Fyrirtækið er staðsett á svæði sem býr við fólksfækkun, sem að stórum hluta má rekja til þess að kvennastörf vantar. Það munar um fyrirtæki sem hefur það á stefnuskrá sinni að veita konum atvinnu. 

www.purenatura.is