Orka 180 hylki - Pure Natura

4.998 kr

Vörunúmer: 5150106007 Pure Natura

aðeins 1 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Orka er fyrir orku og lífskraft og hentar sérstaklega vel fyrir þá sem sunda miklar íþróttir eða eru á annan hátt útsettir fyrir steitu og álagi.

Þessi magnaða orkusprengja er unnin úr hjörtum, lifur, burnirót og hvítlauk, en þetta er matur sem vantar að mestu í nútíma mataræði.

Hvert hylki af þessari öflugu blöndu inniheldur gnægð nauðsynlegra næringarefna á formi sem líkaminn getur auðveldlega nýtt sér til viðhalds og orkuframleiðslu.

Allar vörur frá Pure Natura eru unnar úr íslensku hráefni og villtar jurtir eru handtíndar í íslenskri náttúru.

ORKA fæðubótarefni í hylkjum er kraftblanda úr lambalifur og hjörtum, ásamt jurtum sem styrkja mótstöðu gegn sýkingum og streitu.

Varan sækir innblástur í næringarfræði, hómópatíu og grasalækningar. Blandan er hugsuð fyrir þá sem vilja hámarka árangur undir líkamlegu og andlegu álagi s.s. íþróttafólk og fólk í álagsvinnu.

Hægt að hækka skammtinn t.d. yfir keppnistímabil, í prófalestri, kringum sýningar oþh. og lækka svo aftur þegar venjulegt viðhald og trimm er í gangi. Hentar ein og sér eða til skiptis við aðrar Pure-vörur.

Varúðarráðstafanir: Hvítlaukur hefur væg blóðþynnandi áhrif og getur aukið hættu á blæðingum og marblettum. Stöðva skal inntöku á hylkjunum að minnsta kosti tveimur vikum fyrir áætlaða skurðaðgerð. Hvítlaukur gæti einnig haft blóðþrýstingslækkandi áhrif og þurfa þeir sem eru að fást við slíkt að vera meðvitaðir um það.

Pure natura

Á heimasíðu Pure Natura er að finna ýmsan fróðleik um fyrirtækið sem framleiðir bætiefni úr sláturafurðum sem eru vannýttar til manneldis.  Þar segir: Framlag Pure Natura er fjölþætt. Við breytum úrgangi í auðlind með því að nýta innmat sem fellur til við dilkaslátrun og er vannýttur til manneldis núorðið. Við framleiðum úr honum verðmæt bætiefni. Þó í stóru myndinni sé þetta kannski ekki  risaskref, þá er þetta þó allavega skref í rétta átt og hvert ferðalag byrjar jú á einu slíku. Fullnýting hráefnis í landbúnaði þarf að verða að veruleika sem allra fyrst og þetta er vissulega innlegg í það.  Pure Natura er rekið af konum og þar starfa eingöngu konur. Fyrirtækið er staðsett á svæði sem býr við fólksfækkun, sem að stórum hluta má rekja til þess að kvennastörf vantar. Það munar um fyrirtæki sem hefur það á stefnuskrá sinni að veita konum atvinnu. 

www.purenatura.is