Fjallagrös - Íslensk hollusta

899 kr

Vörunúmer: 2200205006 Íslensk hollusta

aðeins 7 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Fjallagrös

Fjallagrös eru algeng um allt land, aðallega á hálendi og heiðum.  Íslendingar notuðu fjallagrös mjög mikið áður fyrr til að drýgja naumt kornmeti í brauð og grauta.  Litið var á fjallagrös sem hollan og næringarríkan mat, auðugan af steinefnum og trefjaefnum.

Fjallagrös hafa ýmsa góða eiginleika, sem nýtast vel til lækninga.  Þau eru talin hafa mýkjandi og græðandi áhrif á slímhúð í öndunarfærum og meltingarvegi og styrkja ónbæmiskerfið. Þau eru sýkladrepandi. 

Víða annars staðar í heimninum hafa fjallagrös verið nýtt til lækninga um aldir, sérstaklega vegna sjúkdóma í öndunarfærum og meltingartruflana. 

Fjallagrös eru góð í ýmsan mat, t.d. brauð, grauta og te.  Í bakstri fara þau vel saman við spelt.

Mjög gott er að setja smávegis af fjallagrösum saman við haframjöl í hafragraut og hafa mulin fjallagrös saman við jurtateblöndur. 

Engin aukaefni

Innihaldslýsing

Innihald: 50g fjallagrös 

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g:

  • Orka 79 kJ / 193 kkal
  • Fita 0,4g
  • - þar af mettuð 0g
  • Kolvetni 5,2g
  • - þar ar sykur 0g
  • Trefjar 80,9g
  • Salt 0g  
Íslensk hollusta

Fyrirtækið Íslensk hollusta var stofnað árið 2005 af Eyjólfi Friðgeirssyni.  Hans markmið frá upphafi var að framleiða og þróa íslenskar heilsuvörur.

Fyrirtækið er í dag með mjög fjölbreytt úrval s.s. te, krydd, osta, snakk, berjadjús og baðvörur.

Hugmyndafræði fyrirtækisins gengur út á að nota eingöngu íslenskar náttúruafurðir og nota eingöngu hefbundnar íslenskar framleiðsluaðferðir.

Allar frekari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þeirra: 

www.islenskhollusta.is