Popp með karamellu og lakkrís - 8 bragðtegundir - Ástrík

690 kr

Vörunúmer: 1040205006 Ástrík

aðeins 8 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Poppið frá Ástrík poppkorn

Ástrík notar einungis óerfðabreyttan poppmaís í hæsta gæðaflokki. Maísbaunirnar sem notaðar eru í kermelluhúðuðu tegundinni eru af svokallaðri "Mushroom" tegund.

Þær poppast í kringlótta hnúða sem auðvelt er að þekja.

Karamellan sem umlykur poppið er gerð á Íslandi úr bestu fáanlegu hráefnum, þ.m.t. íslensku smjöri og Norðursalti. Nettóþyngd 70g.

8 bragðtegundir:

  • Karamellupopp með Amaretto og möndlum
  • Karamellupopp með kókos
  • Karamellupopp með lakkrís
  • Karamellupopp með rósmarín
  • Karamellupopp með sjávarsalti
  • Lakkríspopp með Turkish pepper
  • Piparköku karamellupopp
  • Jólapopp

Geymist á þurrum stað.

Innihaldslýsing

Innihald: Poppmaís 26% (uppruni: Frakkland), sykur, kókosolía, kókos, kókosrjómi, salt, natíumbíkarbónat (matarsódi)

Næringargildi

Næringargildi í 100g:

  • Orka 1386 kJ / 331 kkal
  • Fita 12,8g
  • - þar af mettaðar fitusýrur 10,6g
  • Kolvetni 52g
  • - þar af sykurtegundir 40g
  • Prótein 1,0g
  • Salt 0,5g
Ástrík poppkorn slf.

Hjá Ástrík poppkorn er aðeins notað besta mögulega hráefni. Poppbaunirnar eru fluttar inn frá Suður-Frakklandi en þær eru óerfðabreyttar og framleiddar eftir ströngum gæðakröfum.

Ástrík poppkorn passar uppá að baunirnar séu geymdar í réttu birtu- og hitastigi svo þær haldi gæðunum.

Karamellan sem umlykur poppið er elduð frá grunni af mikilli nákvæmni en til þess að karamellan hafi góða áferð, skiptir hvert handtak og tímasetning gríðarlega miklu máli.  Ástrík poppkorn notar íslenskt sjávarsalt, jurtir og smjör í karamelluna og engin aukaefni.

Allar frekari upplýsingar má finna á heimasíðu þeirra: www.astrik.is