
Rabarbarasulta - 140g. Hátíðleg blanda af rabarbara og kryddum.
Sultan er góð með lambasteikinni sem og ostum og brauðmeti.
Geymist í kæli eftir opnun.
Innihaldslýsing
Innihald: Rabarbari (56%), hrásykur, sítrónusafi, vanilla, kanill og negull.
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g eru u.þ.b.:
- Orka 832 kJ
- Fita 0,3g
- - þar af mettuð fita 0,1g
- Kolvetni 46g
- - þar af sykur 46g
- Trefjar 2,6g
- Prótein 0,8g
Móðir jörð
Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdal býður lífrænt ræktaðar, hollar og bragðgóðar afurðir sem framleiddar eru í sátt við náttúruna. Fyrirtækið leggur stund á korn- og grænmetisræktun og framleiðir tilbúnar hollustu- og sælkeravörur. Móðir Jörð er í eigu hjónanna Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur. Allar vörur framleiddar af Móðir Jörð eru lífrænt vottaðar af vottunarstofunni Tún.