Fiskibollur (frosin vara) - Fisk Kompaní

1.990 kr

Vörunúmer: 6000109001 Fisk kompaní

Vara væntanleg

á þeim tíma

sem þér hentar

Fiskibollur

Magnaðar fiskibollur frá Akureyri - 12 stk. - ca 500g

Fiskibollurnar eru afgreiddar freðnar - látið þiðna við stofuhita í ca 30 mín.

Hitið olíu eða smjör á pönnu og hitið fiskibollurnar í ca 10-15 mín - eða þar til þær eru heitar í gegn. Einnig hægt að hita í ofni.

Berið fram með bræddu smjöri, kartöflum og rúgbrauði - eða öllu því helsta sem ykkur þykir gott með fiskibollum.

Innihaldslýsing

Innihald: Þorskur/ýsa, hveiti, kartöflumjöl, laukduft, salt, pipar, engifer, múskat, olía, laukur, bindiefni (E220, E227).

Fisk kompaní ehf

Ragnar og Ólöf eiga og reka FISK Kompaní á Akureyri og hafa gert það frá árinu 2013. Fisk Kompaní verslar allan fisk af fiskmörkuðum Íslands daglega.

Starfsmenn fyrirtækisins handflaka og snyrta allt sitt hráefni og tryggja þannig bestu og ferskustu vöruna. Fiskibollurnar þeirra eru landsfrægar.

Ekta íslenskur matur.

Allar frekari upplýsingar um Fisk kompani má finna á heimasíðu þeirra: www.fiskkompani.is