Íslensk kjötsúpa, frostþurrkuð í álpoka - Feed the Viking

1.170 kr

Vörunúmer: 1110109001 Feed the Viking

aðeins 1 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Kjötsúpan

Hver poki inniheldur 50g blöndu af frostþurrkuðu, fyrsta flokks íslensku lambakjöti, kartöflum, súpujurtum, grænmeti, kröftum og kryddi.

Hver vill ekki taka hefðbundnu íslensku kjötsúpuna með sér á fjöll, í vinnuna eða til að njóta í hádeginu? Þótt hvert heimili landsins eigi sína eigin útgáfu af kjötsúpunni erum við afar stollt af því að ná loks að gera hana meðfærilega en það eina sem þú þarft er sjóðandi vatn og 10 mínútur til að njóta hennar hvar sem er... hvenær sem er.

Þú hellir 300 ml af sjóðandi vatni í pokann, hrærir vel, lokar pokanum og lætur hann standa í 8-10 mínútur.

Innihaldslýsing

Innihald: Lambahakk (frostþurrkað fyrsta flokks íslenskt lambakjöt, hakkað og fulleldað), kartöflur, súpujurtir, blandað grænmeti, hafrar, gúllaskraftur, lambakraftur, krydd, salt. Ofnæmisvaldar: Sellrí, mjólkurprótein og Maltodextrin.

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g:

  • Orka 1517 kJ / 363 kkal
  • Fita 9,6g
  • - þar af mettuð 3,7g
  • Kolvetni 50,6g
  • - þar af sykur 10,9g
  • Prótein 16,5g
  • Salt 2,7g
Feed the Viking

Feed the Viking er íslenskt sprotafyrirtæki, stofnað árið 2016, sem starfar með það að markmiði að auka virði íslenskra matvæla. Félagið þróar, framleiðir og selur matvörur úr íslensku lambi, nauti og þorski.

Vörurnar eru annarsvegar Jerky sem er loftþurrkað kjöt og harðfiskur í snakkformi og hinsvegar Fjallamatur sem eru frostþurrkaðar máltíðir.

Jerky afurðirnar eru fjórar; Lamb Jerky, Beef Jerky, Fish Jerky og Fish Jerky með hvítum Cheddarosti og Fjallamatar afurðirnar þrennskonar; Lamb Stew, Fish Soup og Vegan Stew.