
Hátíðarsteikin
Hver pakki inniheldur u.þ.b. 400 g af fulleldaðri Seitan Vegan Hátíðarsteik sem er tilbúin í veisluna.
Loksins er hin fullkoma Vegan Hátíðarsteik fáanleg tilbúin í veisluna. Hún er fullkominn matur fyrir 2 fullorðna og mælum við sérstaklega með brúnuðum kartöflum (nota til dæmis smjörlíki í stað smjörs), rjómalagaðri sveppasósu og kalkúnafyllingu sem meðlæti... verði ykkur að góðu!
Leiðbeiningar við upphitun: Þessi hatíðarsteik er fullelduð og tilbúin til neyslu. Við mælum með því að hún sé þídd, síðan hituð í ofni við 160° C í 12 til 15 mínútur og borin fram heit ásamt sósu og meðlæti.
Innihaldslýsing
Grænmetissoð, Kókósmjólk, Glutenmjöl, Pilsner, Kjúklingabaunamjöl, Trönuber, Kasjúhnetur, Tómatmauk, Soya Sósa, Sýróp, Sriracha Sósa, Olía, Krydd, Sinnep.
Ofnæmisvaldar: HVEITI, HNETUR, SINNEP OG SOYA.
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g:
- Orka 787 kJ /189 kkal
- Fita 6,8g
- - þar af mettuð 4,2g
- Kolvetni 12,4g
- - þar af trefjar 0,8g
- - þar af sykur 4,7g
- Prótein 18,9g
- Salt 0,5g
Feed the Viking
Feed the Viking er íslenskt sprotafyrirtæki, stofnað árið 2016, sem starfar með það að markmiði að auka virði íslenskra matvæla. Félagið þróar, framleiðir og selur matvörur úr íslensku lambi, nauti og þorski.
Vörurnar eru annarsvegar Jerky sem er loftþurrkað kjöt og harðfiskur í snakkformi og hinsvegar Fjallamatur sem eru frostþurrkaðar máltíðir.
Jerky afurðirnar eru fjórar; Lamb Jerky, Beef Jerky, Fish Jerky og Fish Jerky með hvítum Cheddarosti og Fjallamatar afurðirnar þrennskonar; Lamb Stew, Fish Soup og Vegan Stew.