
Einiberjaskinka frá Korngrís
Kælivara 0-4 °C
Innihaldslýsing
Innihald: Grísakjöt 92%, vatn 8%, salt, rotvarnarefni (E250), bindiefni (E450), þráavarnarefni (E301)
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g:
- Orka 461 kJ / 112 kkal
- Fita 4g
- - þar af mettuð fita 1,8g
- Kolvetni 0.2g
- - þar af sykur 0,2g
- Prótein 17g
- Salt 1,1g
Korngrís
Svínabúið í Laxárdal er stofnað af hjónunum Herði Harðarsyni og Maríu Guðnýju Guðnadóttur árið 1978.
Allir grísirnir á svínabúinu eru aldir á íslensku fóðri.
Hér eru nánari upplýsingar um kornræktina:
Kornræktin hófst árið 2000. Fyrst var ræktað korn í Laxárdal og á nærliggjandi jörðum á c.a 5ha. Einnig var korn keypt af bændum ýmist fullþurrkað eða óþurrkað. Í dag fer öll ræktunin fram í Gunnarsholti á um 230ha. Við ræktum bygg að mestum hluta en einnig hveiti og nepju sem er afbrigði af repju. Jarðvegurinn í Gunnarsholti er frekar næringarsnauður og því er mikilvægt að skila til baka næringarefnum sem tekin eru með uppskerunni. Hálmurinn er að miklu leyti saxaður aftur niður í jörðina en tekinn af akrinum þriðja hvert ár. Eftir nokkur ár í ræktun fór að bera á skorti á snefilefnum. Í dag er sérstökum fljótandi áburði úðað á þeim tíma sem plönturnar þurfa á honum að halda.
Uppskeran:
Korn þarf að vera laust við sveppasmit og rúmmál kornsins þarf að vera amk 620kg/rúmmetra
Þurrkun:
Kornið geymist vel í mörg ár þurrkað og er góð söluvara. Við þurrkum allt okkar korn og geymum í sílói við bæinn.
Framleiðslukostnaður þarf að vera lægri en verð á innfluttu korni til að það borgi sig að rækta það. Upp úr aldamótum hefur heimsmarkaðsverð á korni hækkað mjög mikið. Í seinni tíð með meiri þekkingu og tækni hefur tekist að auka uppskeru á hvern ha en verð hefur einnig lækkað.
Nepjan er þurrkuð og heilmöluð. Þ.e.a.s svínin fá bæði olíuna og hýðið sem er utan um. Hýðið er ríkt af próteinum og kemur að hluta í stað innflutts soya. Olían nýtist sem orkugjafi og er mjög rík af Omega-3 fitusýrum og fjölómettuðum fitusýrum.