KORNGRÍS
KORNGRÍS
Svínabúið í Laxárdal er stofnað af hjónunum Herði Harðarsyni og Maríu Guðnýju Guðnadóttur árið 1978.
María Guðný Guðnadóttir og Hörður Harðarson byrjuðu með eina gyltu í gömlu hesthúsi árið 1978 og hefur stækkað ört síðan. Í dag eru gylturnar orðanar 160 sem er talið lítið bú í dag. Þetta er lítið fjölskyldubú. Bændurnir þar rækta sitt eigið bygg, hveiti og repju til að fóðra svínin.
Fóðrunin.
Það sem er nokkuð sérstakt við eldið á okkar svínum er að þau eru alin að mestu á íslensku fóðri.
Árið 2007 hófst kornræktin í Gunnarsholt á Rangárvöllum, þar sem nægjanlegt land er til staðar, en sama ár var ræktað á um 30 hekturum. Næstu ár var aukið við ræktunina jafnt og þétt. Komið var upp búnaði til að þurrka, geyma og flytja kornið. Einnig var fjárfest í tækjum til jarðvinnslu og sáningar.
Í dag er meginhluti ræktunarinnar bygg en einnig er ræktun á repju vaxandi ásamt því að tilraunir hafa verið gerðar með ræktun á hveiti, rúg og höfrum. Árið 2017 er stefnt að því að rækta bygg á um 190 hekturum og repju á um 40 hekturum. Þá eru gerðar tilraunir með hentugar aðferðir til að hvíla land sem er í stöðugri ræktun og hvaða ræktunaraðferðir henta best.
Í dag er íslenskt hráefni í um 75% af öllu fóðri sem framleitt er fyrir svínin í Laxárdal.
Hér eru nánari upplýsingar um kornræktina:
Kornræktin hófst árið 2000. Fyrst var ræktað korn í Laxárdal og á nærliggjandi jörðum á c.a 5ha. Einnig var korn keypt af bændum ýmist fullþurrkað eða óþurrkað. Í dag fer öll ræktunin fram í Gunnarsholti á um 230ha. Við ræktum bygg að mestum hluta en einnig hveiti og nepju sem er afbrigði af repju. Jarðvegurinn í Gunnarsholti er frekar næringarsnauður og því er mikilvægt að skila til baka næringarefnum sem tekin eru með uppskerunni. Hálmurinn er að miklu leyti saxaður aftur niður í jörðina en tekinn af akrinum þriðja hvert ár. Eftir nokkur ár í ræktun fór að bera á skorti á snefilefnum. Í dag er sérstökum fljótandi áburði úðað á þeim tíma sem plönturnar þurfa á honum að halda.
Uppskeran:
Korn þarf að vera laust við sveppasmit og rúmmál kornsins þarf að vera amk 620kg/rúmmetra
Þurrkun:
Kornið geymist vel í mörg ár þurrkað og er góð söluvara. Við þurrkum allt okkar korn og geymum í sílói við bæinn.
Framleiðslukostnaður þarf að vera lægri en verð á innfluttu korni til að það borgi sig að rækta það. Upp úr aldamótum hefur heimsmarkaðsverð á korni hækkað mjög mikið. Í seinni tíð með meiri þekkingu og tækni hefur tekist að auka uppskeru á hvern ha en verð hefur einnig lækkað.
Nepjan er þurrkuð og heilmöluð. Þ.e.a.s svínin fá bæði olíuna og hýðið sem er utan um. Hýðið er ríkt af próteinum og kemur að hluta í stað innflutts soya. Olían nýtist sem orkugjafi og er mjög rík af Omega-3 fitusýrum og fjölómettuðum fitusýrum.