
Súkkulaðikaka Praline fyrir 4
Súkkulaðikaka Praline úr viðarhitaða steinofninum á Böggvisstöðum í Svarfaðardal. Miðlungsstór kaka áætluð fyrir fjóra.
Ofninn sem kökurnar eru er bakaðar í er hitaður með íslensku birki.
Innihaldslýsing
Innihald: Heimamalað hveiti úr lífrænu korni, SMJÖR, lífrænn sykur, MÖNDLUR, HESLIHNETUR, súkkulaði, EGG, MJÓLK, vatn og salt.
Böggvisbrauð ehf
Mathias Spoerry og Ella Vala Ármannsdóttir búa á Böggvisstöðum í Svarfaðardal. Þau hafa handsmíðað gullfallegan steinofn að franskri fyrirmynd, sem er hitaður upp með íslensku birki. Í ofninum baka þau súrdeigsbrauð úr lífrænu korni frá Frakklandi.
Í brauð og kökur er nota þau eingöngu nýmalað lífrænt hveiti, án íblöndunarefna, en þannig varðveitast öll góð steinefni og vítamín, sem annars tapast úr hveitinu með tímanum.
Allar frekari upplýsingar um Böggvisbrauð má finna á facebook.