Græðikrem Galdradís - Hraundís

4.990 kr

Vörunúmer: 3200207015 Hraundís

aðeins 3 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Einstaklega græðandi og mýkjandi krem með vallhumli. Kremið er gott að nota á sár og þura húð. Einnig hefur það reynst vel á brunasár.

Notkunarleiðbeiningar

Berið á þurra og hreina húð.

Innihaldslýsing

Kókosolía/Coconut oil (Cocos nucifera), Jójóbaolía/Jojoba oil (Simmondsia chinensis), Vallhumall/Yarrow (Achillea millefolium), Shea smjör/Shea butter (Vitellaria paradoxa) Býflugnavax/Beeswax (Cera alba), Lavender ilmkjarnaolía/Lavender essential oil, (Lavandula angustifolia)

Framleiðandinn
Framleiðandinn Hraundís Guðmundsdóttir útskrifaðist sem ilmolíufræðingur frá Lífsskólanum 2007. Hún rak nuddstofu í Reykholtsdal í mörg ár þar sem hún blandaði ilmkjarnaolíur í nuddolíur til að hjálpa fólki við ýmsum kvillum.

Hún gekk með þann draum í mörg ár að framleiða ilmkjarnaolíur á jörðinni Rauðsgili þar sem hún býr. Í janúar 2015 fór hún út til Sedona í Arizona til að læra eimingu plantna hjá fyrirtækinu Phebee aromatic. Hjónin Max og Clare Licher reka það fyrirtæki og komu síðan til Íslands og aðstoðuðu við að koma framleiðslunni af stað á Rauðsgili. Hraundís er búin að vera í tilrauna eimingu síðan við ýmsar tegundir plantna sem vaxa í náttúru Íslands.