Kvefpinni - Hraundís

1.390 kr

Vörunúmer: 3200207013 Hraundís

aðeins 14 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Kvef pinninn er frábær til að losa um stíflur í nefi og ennisholum. Hann er bakteríudrepandi og gott er að hafa hann við hendina þegar kvef gerir vart við sig. Hann er framleiddur úr náttúrulegum íslenskum skógar afurðum. Ómissandi í vasann í fluginu.

Notkunarleiðbeiningar

Berið kvefpinnann að annarri nösinni og andið að ykkur í gegnum nefið. Berið að hinni nösinni og endurtakið.

Innihaldslýsing

Stafafura og sitkagreni ilmkjarnaolíur sem eru bakeríudrepandi og frískandi.

Framleiðandinn
Framleiðandinn Hraundís Guðmundsdóttir útskrifaðist sem ilmolíufræðingur frá Lífsskólanum 2007. Hún rak nuddstofu í Reykholtsdal í mörg ár þar sem hún blandaði ilmkjarnaolíur í nuddolíur til að hjálpa fólki við ýmsum kvillum.

Hún gekk með þann draum í mörg ár að framleiða ilmkjarnaolíur á jörðinni Rauðsgili þar sem hún býr. Í janúar 2015 fór hún út til Sedona í Arizona til að læra eimingu plantna hjá fyrirtækinu Phebee aromatic. Hjónin Max og Clare Licher reka það fyrirtæki og komu síðan til Íslands og aðstoðuðu við að koma framleiðslunni af stað á Rauðsgili. Hraundís er búin að vera í tilrauna eimingu síðan við ýmsar tegundir plantna sem vaxa í náttúru Íslands.