Hún gekk með þann draum í mörg ár að framleiða ilmkjarnaolíur á jörðinni Rauðsgili þar sem hún býr. Í janúar 2015 fór hún út til Sedona í Arizona til að læra eimingu plantna hjá fyrirtækinu Phebee aromatic. Hjónin Max og Clare Licher reka það fyrirtæki og komu síðan til Íslands og aðstoðuðu við að koma framleiðslunni af stað á Rauðsgili. Hraundís er búin að vera í tilrauna eimingu síðan við ýmsar tegundir plantna sem vaxa í náttúru Íslands.

Síberíuþins ilmkjarnaolía er bakteríudrepandi og þvi mjög góð gegn kvefi. Hún er einnig bólgueiðandi og mjög góð sem nuddolía við vöðvaverkjum og bólgum. Hún er upplífgandi og örvar sjálfstraustið. Styrkir ónæmiskerfið. Hentar mjög vel sem híbýlailmur.
Notkunarleiðbeiningar: Blöndun á húð. Í 30ml af burðarolíu eru blandað sirka 10 dropum af ilmkjarnaolíu en það er hæfilega sterk blanda. Burðarolía fer eftir smekk hvers og eins en hún getur verið jójóbaolía, ólífuolía, sesamolía, kókosolía, möndluolía eða sólblómaolía. Mikilvægt er að velja hreina kaldpressaða olíu og helst lífrænt vottaða.
Innihaldslýsing
Fjallaþinur ilmkjarnaolía.
Framleiðandinn
Framleiðandinn Hraundís Guðmundsdóttir útskrifaðist sem ilmolíufræðingur frá Lífsskólanum 2007. Hún rak nuddstofu í Reykholtsdal í mörg ár þar sem hún blandaði ilmkjarnaolíur í nuddolíur til að hjálpa fólki við ýmsum kvillum.