Hún gekk með þann draum í mörg ár að framleiða ilmkjarnaolíur á jörðinni Rauðsgili þar sem hún býr. Í janúar 2015 fór hún út til Sedona í Arizona til að læra eimingu plantna hjá fyrirtækinu Phebee aromatic. Hjónin Max og Clare Licher reka það fyrirtæki og komu síðan til Íslands og aðstoðuðu við að koma framleiðslunni af stað á Rauðsgili. Hraundís er búin að vera í tilrauna eimingu síðan við ýmsar tegundir plantna sem vaxa í náttúru Íslands.

Sitkagreni er einstaklega róandi, sefandi og kælandi og því góð til að nota í ilm lampa.
Hún er bakteríudrepandi og því mjög góð geng kvefi og hósta an þá er hún borin blönduð við burðarolíu á bringu, háls og andlit.
Hún örvar blóðrásina og er góð við sinadrætti og fótapirring en þá er gott að bera hana á fæturnar á kvöldin.
Hún er einstaklega góð sem nuddolía því hún er verkjastyllandi og bólgueyðandi og þá er gott að blanda öðrum olíum með eins og t.d. lavender til að fá ennþá meiri virkni fyrir vöðvana.
Hún hefur reynst vel gegn mígreni. Þegar mígreni byrjar bera hana á enni, gagnaugu og niður hálsinn að aftan.
Góð olía til að nota í ilm lampa gegn kvefi. Líka er hægt að setja heitt vatn í fat og 2-3 dropa af olíunni í, setja síðan handklæði yfir höfuðið og halda höfðinu yfir fatinu til að anda henni vel að sér í nokkrar mínútur. Einnig er gott að blanda hana saman við burðaolíu og bera á bringu og háls. Notist ekki óblönduð á húð.
Notkunarleiðbeiningar: Blöndun á húð: Í 30ml af burðarolíu eru blandað sirka 10 dropum af ilmkjarnaolíu en það er hæfilega strerk blanda. Burðarolía fer eftir smekk hvers og eins en hún getur verið jójóbaolía, ólífuolía, sesamolía, kókosolía, möndluolía eða sólblómaolía. Mikilvægt er að velja hreina kaldpressaða olíu og helst lífrænt vottaða.
Innihaldslýsing
Sitkagreni ilmkjarnaolía.