Lindifura ilmkjarnaolía - Hraundís

3.590 kr

Vörunúmer: 3200207019 Hraundís

aðeins 3 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Gott er að nota lindifuru í ilm lampa sérstaklega ef um lungna vandamál er að ræða. Líka er hægt að setja heitt vatn í fat og 2-3 dropa af lindifuru í, setja síðan handklæði yfir höfuðið og halda höfðinu yfir fatinu til að anda henni vel að sér í nokkrar mínútur. Einnig er gott að blanda hana saman við burðaolíu og bera á bringu og háls. Lindifuru tré voru áður fyrr gróðursett í kringum berklahælin því þau voru talin svo styrkjandi fyrir lungun. Notist ekki óblönduð húð. 

Notkunarleiðbeiningar: Blöndun á húð: Í 30ml af burðarolíu eru blandað sirka 10 dropum af ilmkjarnaolíu en það er hæfilega strerk blanda. Burðarolía fer eftir smekk hvers og eins en hún getur verið jójóbaolía, ólífuolía, sesamolía, kókosolía, möndluolía eða sólblómaolía. Mikilvægt er að velja hreina kaldpressaða olíu og helst lífrænt vottaða.

Innihaldslýsing

Lindifura ilmkjarnaolía.

Framleiðandinn
Framleiðandinn Hraundís Guðmundsdóttir útskrifaðist sem ilmolíufræðingur frá Lífsskólanum 2007. Hún rak nuddstofu í Reykholtsdal í mörg ár þar sem hún blandaði ilmkjarnaolíur í nuddolíur til að hjálpa fólki við ýmsum kvillum.

Hún gekk með þann draum í mörg ár að framleiða ilmkjarnaolíur á jörðinni Rauðsgili þar sem hún býr. Í janúar 2015 fór hún út til Sedona í Arizona til að læra eimingu plantna hjá fyrirtækinu Phebee aromatic. Hjónin Max og Clare Licher reka það fyrirtæki og komu síðan til Íslands og aðstoðuðu við að koma framleiðslunni af stað á Rauðsgili. Hraundís er búin að vera í tilrauna eimingu síðan við ýmsar tegundir plantna sem vaxa í náttúru Íslands.