Ofurfæða - næringaruppbót. Næring inniheldur íslenska lambalifur sem er ein næringarríkasta fæða sem völ er á. Öll næringarefnin eru á formi sem líkaminn getur auðveldlega nýtt sér og þekkir sem mat.
Innihald: Frostþurrkuð lambalifur - möluð í hylkjum. Hylki úr jurtabeðmi
Næring er m.a. ein besta uppspretta A, B og D-vítamína auk þess að innihalda önnur vítamín, stein- og snefilefni s.s. selen og króm. Hátt magn B-vítamína stuðlar að aukinni skerpu og dregur úr þreytu og sleni.
Í Pure Nutrition er að finna K og E vítamín, kalíum, magnesíum, fosfór og mangan. Hún er einnig sérlega járn- og koparrík, en kopar gefur hárinu og húðinni lit auk þess að verja frumur líkamans fyrir áhrifum sindurefna. Þá inniheldur hún andoxunarefnið Q10, mikilvægar fitusýrur (EPA, DHA & AA) og hágæða prótein.
Pure Nutrition er frábær viðbót við almennt nútíma mataræði, sérstaklega þeirra sem kann að skorta næringarefni, fyrir íþróttafólk og aðra sem stunda mikið líkamlegt erfiði. Þá hentar varan frábærlega þeim sem eru að leita að öflugri uppsprettu A-og B-vítamína, unnum úr raunverulegri fæðu.
Allar vörur frá Pure Natura eru unnar úr íslensku hráefni.
NÆRING fæðubótarefni í hylkjum er hrein íslensk, frostþurrkuð og möluð lambalifur sem sækir innblástur í næringarfræði og hómópatíu.
Næring frá Pure Natura er næringarsprengja og inniheldur mikið magn ýmissa ómissandi næringarefna, vítamín, steinefna og próteins. Hún er frábær fyrir þá sem vilja hressa sig við og vantar efni sem hafa með orkuna að gera s.s. járn og B-vítamín.
Við gefum börnunum okkar 2 belgi að morgni og þetta er líka úrvals viðbót við mataræði eldra fólks sem oft hefur litla matarlyst og fær ekki nægjanlegt magn næringarefna í gegnum venjulegt mataræði. Fyrir alla þá sem leita eftir fyrsta flokks næringarefnum úr alvöru mat.
Pure Natura
Á heimasíðu Pure Natura er að finna ýmsan fróðleik um fyrirtækið sem framleiðir bætiefni úr sláturafurðum sem eru vannýttar til manneldis. Þar segir: Framlag Pure Natura er fjölþætt. Við breytum úrgangi í auðlind með því að nýta innmat sem fellur til við dilkaslátrun og er vannýttur til manneldis núorðið. Við framleiðum úr honum verðmæt bætiefni. Þó í stóru myndinni sé þetta kannski ekki risaskref, þá er þetta þó allavega skref í rétta átt og hvert ferðalag byrjar jú á einu slíku. Fullnýting hráefnis í landbúnaði þarf að verða að veruleika sem allra fyrst og þetta er vissulega innlegg í það. Pure Natura er rekið af konum og þar starfa eingöngu konur. Fyrirtækið er staðsett á svæði sem býr við fólksfækkun, sem að stórum hluta má rekja til þess að kvennastörf vantar. Það munar um fyrirtæki sem hefur það á stefnuskrá sinni að veita konum atvinnu.